|
|
27.05.2010 10:56:58 / agust2007
Hæhæ, ég er kominn aftur, eftir svakalega erfiða tíma undanfarnar vikur. Þannig er mál með vexti að í rannsóknunum sem ég fór í, í apríl, að það sáust 2 blettir í lungunum á mér. Þeir voru ekki nógu stórir til að læknarnir gætu tekið ákvörðun um framhaldið þannig að ég var látinn bíða í mánuð og svo fara aftur í rannsókn. Einn erfiðasti mánuður sem ég hef upplifað! Þetta hefði verið 3 skiptið og það endar oftast eins. Síðan fyrir 9 dögum síðan fór ég í rannsóknir aftur, og blettirnir virtust horfnir! Ég get ekki sagt ykkur hversu mikill léttir það var, eins og að fá lífið aftur! Þetta hafði þá líklegast verið sýking. Ég hætti í sálfræðinni enda ekki hægt að fara í próf á svona tímum, hins vegar hef ég ákveðið að byrja ekki aftur í henni, heldur langar mig að verða læknir. Krabbameinið eignaðist óvin for life, hversu langt það verður, þá ætla ég að reyna að verða læknir og bjarga litlum krílum og ungu fólki. Þannig nýtist reynslan mín best, og ef ég fæ að vera kári í 15 ár, þá get ég orðið læknir. Næst á dagskrá er að njóta sumarsins, vona að þið gerið það líka Kv Kári
»
30.03.2010 00:08:04 / agust2007
Hæhæ, ég skulda eitt blogg, en verst að ég hef ekki frá neinu að segja! Ég er bara í skólanum, gengur svona sæmilega, vonum a þetta reddist ekki í vor, reyni að vera duglegur í páskafríinu og svona. Ég fer síðan í rannsóknir og svona um miðjan apríl, læt ykkur vita hvernig það fer, verður erfitt að vera í prófalestri á sama tíma og ég fer í rannsóknir, þær eru mjög erfiðar, og töluvert mikilvægari en einhver próf. En ég hef svosem ekki frá miklu að segja, hins vegar langar mig að ferðast í sumar á hjólinu mínu um landið og taka myndir, megið endilega setja staði sem ég þarf að fara á, einhver uppáhalds staður á landinu hjá ykkur? Endilega segið mér frá honum, ætla að upplifa náttúrufegurðina af mótorhjólinu og væri gamann að uppgvöta einhverjar gersemar, svo líka bara ef ég á inni í kaffi og kleinu einhverstaðar þarna úti  bæbæ kv kári
»
31.12.2009 18:05:13 / agust2007
Hæhæ, ég ætla aðeins að minna á mig  , þakka stuðninginn á árinu sem er að líða, sérstaklega vill ég þakka fyrir bænirnar. Þegar að ég lít til baka þá er ég rosalega ánægður með að geta upplifað þessi aldamót, þau eru ekkert gefin í mínu tilfelli, markmið næsta árs er að greinast ekki aftur, fá aldrei vondar fréttir aftur, svo kemur hitt allt annað á eftir  Mér gekk vel í skólanum, náði sálfræðinni og held áfram eftir jól, svo eru rannsóknir um miðjan janúar, þannig að það fer að koma að þeim, maður er byrjaður að hugsa um þær þessa daganna. En já, ég vona að allir hafi notið jólanna og eigi gæfuríkt ár 2010. Það eru 2 ár síðan að ég greindist í annað skiptið, þetta lítur vel út, en þetta er 5 ára áætlun hjá mér, þannig að ég bið um bænir ykkar í 3 ár í viðbót  Þið meigið líka biðja mig Kveð ykkur með lagi http://www.youtube.com/watch?v=zlNwlNpsvlAKv Kári
»
19.10.2009 19:40:26 / agust2007
Jæja, ég er mættur á ný, 10 vikum eða svo síðan að ég bloggaði síðast og ennþá eru einhverjir sem kíkja. Ég varð 21 árs í síðustu viku, sem er ekkert merkilegt nema fyrir þær sakir að ég bjóst aldrei við því að verða 21 árs. Ég hélt upp á afmælið mitt á spítalanum, í 3 mánaða rannsóknum og fékk góðar niðurstöður úr þeim. Læknarnir sjá ekkert sem þeir halda að sé krabbamein, það eina sem þeir sjá eru blettir sem hafa verið óhreyfðir lengi og þeir halda að séu bara ör eftir geislana. Bráðum eru 2 ár síðan að ég greindist í annað skiptið,,,ég rifja á hverjum degi upp hvað ég var hægt kominn, hvað mér leið eins og ég væri kominn á endastöð á þessum tíma, ég þakka fyrir á hverjum degi að vera í þessari góðri stöðu sem ég er í, í dag. Þetta er samt enganvegin búið, mitt mein var eins og þið vitið búið að dreyfa sér út um allt, og það er ekkert gefið í þessum efnum, en það lítur allt vel út núna Þessa daganna er ég á fullu í sálfræðináminu, mér hefur gengið vel hingað til og námið á vel við mig, ég vill geta látið gott af mér leiða og deilt reynslunni minni með öðrum til þess að hjálpa, og sálfræðin er mjög góður vetvangur fyrir það. Síðan er háskólalífið mjög áhugavert, mikið djamm og gleði  En já, rannsóknir búnar og ég get verið glaður og hress í 3 mánuði í viðbót, alveg þangað til næstu rannsóknir eru, en með hverjum deginum sem líður styrkist ég í þeirri trú að þetta endi vel. En vegna fyrri reynslu heldur maður sér á jörðinni í þeim efnum  takk fyrir að kíkja við ennþá, hérna er svo mynd af stráknum með hárið á milli tíma í háskólanum  Kv Kári
»
31.07.2009 13:47:25 / agust2007
Heim er ég kominn í annað skiptið, eftir mánaðarflakk um fallegustu parta evrópu  Ég ásamt vinum mínum byrjuðum á rokkhátíð í belgíu, sem ég reyndar naut ekkert svakalega því ég var veikur næstum alla hátíðina, en síðustu tveir dagarnir voru nú betri en fyrstu tveir  Eftir það hresstist ég, og við keyrðum niður þýskaland, að fússen við rætur alpana, fórum upp á stærsta tind þýskalands, fórum yfir í austurísku alpana, til ítalíu og vorum í 3 nætur við la garda vatnið á ítalíu þar sem ég leigði mér vespu og svona, ótrúlega skemmtilegt og mögulega fallegasti staður sem ég hef komið á. Eftir það fórum við til feneyja, svo til mílanó og þaðan til parísar, við keyrðum upp eftir ströndum frakklands og belgíu, til amsterdam og þaðan að rínarfljótinu við frankfurt. svo flugum við heim. ógleymanleg ferð  Ég fór síðan í rannsóknir núna í þessari viku og þær komu vel út, ekkert krabbamein sem sést og nú eru rúmir 18 mánuðir liðnir síðan að ég greindist í annað skiptið og allt lýtur vel út. Ég er loksins byrjaður að vakna á morgnanna og hugsa að ég geti virkilega lifað til að verða gamall maður, ég er svo þakklátur fyrir þessa von, og fyrir hvað allt lýtur vel út  Fólk segir við mig að þetta sé bara búið, en þau vita bara ekki betur, ég leyfi mér ekki að halda það, því þegar að maður er búinn að fá krabbamein, sem tók sig upp aftur í 4 stöðum í líkamanum, getur maður bara ekki gefið sér neitt. Ég er kominn á sama stað og fyrir tvem árum, þar sem ég hélt að allt væri horfið, hárið komið, þrekið að koma aftur og allt leit vel út. Ég get ekki dottið í þá gildru aftur, en ég vona innilega, og bið á hverjum degi að þetta sé búið. 3 og hálft ár í að ég sé læknisfræðilega öruggur, þannig að maður reynir að njóta lífsins og lifa því eins vel og maður getur Núna á eftir fer ég a þjóðhátíð, svo kem ég heim og byrja í háskólanum  Ég er loksins búinn að ákveða nám, ég fer í sálfræði og það er endanlegt, svo sé ég bara hvað tekur við, en hérna fyrir neðan eru nokkrar myndir sem ég var búinn að lofa, endilega haldið áfram að biðja fyrir mér, er svo þakklátur fyrir það, kv kári   Við félagarnir á leiðinni upp zugspitze í þýskalandi  hérna erum við ásamt bílnum sem við keyrðum 6000 km á  keyrði á vespunni minni upp og tók mynd af garda vatninu og bænum sem við gistum í
»
23.06.2009 03:00:59 / agust2007
Hæhæ, ég er loksins kominn heim frá texas, loksins segi ég því ég fílaði ekki staðinn, allt of heitt, lítið að gera nema spila golf sem ég gerði næstum á hverjum degi. Núna er bara að vona að þessi meðferð beri árangur, að hún hjálpi mér að fá aldrei slæmar fréttir af krabbameinini aftur. Síðan fer ég í rannsóknir í næstu viku og þær koma vonandi vel út. Þá get ég farið nokkuð áhyggjulaus til evrópu í evrópureisuna með vinum mínum, ætlum að keyra um evrópu og skoða okkur um, lofa að taka nokkrar flottar myndir með nýju myndavélinni minni sem ég fékk mér í texas  . Þannig að ég mun reyna að njóta íslensks sumar í eina viku áður en ég fer í rannsóknir og svo út, vona að þið gerið það líka, kv Kári
»
11.05.2009 11:24:50 / agust2007
Jæja, núna er kominn Maí, og já ég er ennþá á klakanum. Texasferðin er alltaf að frestast því að læknarnir þarna úti eru algerir sauðir, en ég er þó búinn að negla hana í enda mánaðarins. Sem er ákveðinn léttir að vera loksins kominn með fasta dagsetningu. Annars er það svosem ekkert svakalega slæmt,nýt bara vorsins hérna heima, og meðan að ég kemst aftur heim í tæka tíð fyrir evrópureisuna sem ég er búinn að plana í sumar þá sleppur þetta allt  Ég fór í rannsóknir í síðustu viku, ekki alveg jafn ýtarlegar og vanarlega en þær komu allar fínt út, enginn breyting sem er víst gott á læknamáli. Ég spurði Halldóru lækni alveg hreint út hverjar lýkurnar á því að ég myndi lifa af út næstu 5 árin, sem eru hættulegasti tíminn, og hún sagði bara hrent út 80%. Miðað við hvað ég var illa kominn fyrir einu og hálfu ári, hélt að ég væri dauðans matur, þá þakka ég fyrir það á hverjum degi að geta vaknað og átt von um að verða stór, eignast börn og eldast. En þetta er bara bið, 4 ár í viðbót og þá getur maður farið að anda léttar. Maður fagnar ekki strax Hins vegar skráði ég mig í háskólan í haust, skipti um plan og skráði mig í viðskiptafræðina, er spenntur fyrir henni og held það sé gott nám. Núna er bara að vona að allt gangi vel hjá mér og ég geti byrjað í háskólanum í haust. En jæja, nóg af mér í bili, takk enn og aftur allir sem eru að biðja fyrir mér og öðrum sem eiga í erfileikum, kv Kári
»
26.03.2009 19:45:15 / agust2007
Jæja, allt of langt síðan að ég setti inn blogg en betra seint en aldrei  Allavega hefur það verið þannig hjá mér að engar fréttir eru góðar fréttir, fór í rannsóknir í síðustu viku sem komu ansi vel út. Þá eru 3 mánuðir í næstu rannsóknir og ég get lifað og fíflast þangað til, maður lifir í 3 mánaða tímabilum. En það þýðir ekkert að ég sé ekki hamingjusamur, ég stend upp úr rúminu á hverjum einasta morgni og þakka fyrir vonina sem ég hef, um að verða fullorðinn, mennta mig og eignast fjölskyldu. Síðan er það texas í byrjun maí. Langar líka aðeins að biðjast afsökunar því ég á náttúrulega að vera löngu búinn að uppfæra bloggið, það er fólk sem skoðar það sem hefur mig í bænum sínum og ég er ekki að sinna þeim á þann eina hátt sem ég get, og það er uppfæra bloggið mitt. Þessa daganna er ég upptekinn við að taka mótorhjólaprófið þar sem ég er nýbúinn að kaupa mér mótorhjól fyrir sumarið, svo er það bara ræktin, vangaveltur um hvaða nám ég ætla í næsta haust ef allt gengur eftir hjá mér. Er líka að plana evrópureisu með 2 öðrum vinum mínum í sumar, ætlum að leigja bíl og keyra um þýskaland, austurrísku alpana og norðurhéruð ítalíu, upp til frakklands og enda í amsterdam. Við færum þá fljótlega eftir næstu rannsóknir eftir rúma 3 mánuði, að sjálfsögðu bara ef rannsóknirnar fara vel  En já, ég ætla að skella einni mynd með svo þið takið mig í sátt aftur eftir bloggleysið. kv kári
»
02.02.2009 06:42:50 / agust2007
Jæja, ég var ekki búinn að gleyma að ég væri með bloggsíðu, en það hefur ekki mikið verið fyrir mig að skrifa um. Hins vegar fékk ég nýjar fréttir frá Texasferðinni í síðustu viku. Hún ætlar að dragast og dragast og mamma ákvað að senda aðallækninum á spítalanum þarna bréf og fékk strax svar, það hafði sem sagt gengið vel að rækta blóðið mitt og það verður ekki tilbúið fyrr en í apríl, læknirinn sagði að ég ætti að koma í lok apríl eða byrjun maí og þyrfti að vera í tvær vikur. Þetta er allt annað en það sem ég hélt að væri að fara að gerast, ég hélt ég væri bara að fara núna í enda febrúar 4-6 vikna törn, en þetta verður sem sagt í vor í kring um mánaðarmótin apríl-maí og á eftir að taka 2 vikur. Á meðann held ég bara áfram að taka krabbameinstöflurnar sem ég er að taka. Sérstakelga núna því vonandi get ég platað læknanna til að gefa mér stærri skammta af þeim  , þær fara vel í mig og um að gera að fá sem mest og maður getur. Hins vegar er voða lítið að frétta annað, ætla mér að fara til davíðs vinar míns sem er á spáni um þessar mundir, spila með honum golf í 10 daga eða svo og halda áfram að koma mér í form, er búinn að vera svakalega duglegur í ræktinni undanfarið og er smátt og smátt að fá gamla vöxtinn minn aftur  Síðan eftir því sem lengri tími líður án þess að maður fái slæmar fréttir og manni lýður vel því mun meiri hamingju maður tekur inn. Þetta er eins og snjóbolti sem rúllar, og mér líður bara ágætlega þessa daganna. Þakka guði allavega fyrir vonina og bjartsýnina sem ég vakna með á hverjum morgni þessa daganna, þetta má aldrei koma aftur! En já, ég sef út, spila á gítarinn minn, fer í ræktina, heng í tölvunni, les bækur og djamma þessa daganna. Jæja, smá update komið af mér, hafið þið það sem allra best og takk allir sem biðja fyrir mér  , kv Kári
»
03.01.2009 04:36:34 / agust2007
Jæja, það er bara komið 2009, gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir það gamla.
Árið 2008 hefur verið ótrúlega erfitt, það byrjaði með því að á nýársnótt veiktist ég svakalega eftir fyrsta lyfjakúrinn og var í 2 vikur á spítalanum. Síðan hélt lyfjakúrinn bara áfram og mikið óskaplega var erfitt að vera svona hundveikur, með sjúkdóm á svona svakalegu stigi og hafa ekki hugmynd um hvort að það var dagur eða nótt. Frá því að árið byrjaði og fram í ágúst var ég í þessum sjúka, langa, ógeðslega lyfjakúr og svo geisla fram í september.
Þessi tími var ótrúlega erfiður, en eftir því sem ég fór í fleiri rannsóknir og hélt áfram með meðferðina fékk maður alltaf meiri og meiri von um að maður gæti unnið þetta stríð. Og eins og stendur, hafa blettirnir út um allt að mestu horfið og læknarnir segja mér það að í þeim rannsóknum sem til eru í dag og ég fer reglulega í, að þeir sjái ekkert sem þeir halda að sé krabbamein.
Fyrir ári síðan datt mér aldrei í hug að þetta gæti orðið raunin, ég er bara þakklátur fyrir að geta borið þá von um að ég geti sigrast á þessu. Ég tók eftir því að nokkrir sem senntu mér kveðju síðast segja við mig að ég sé sigurvegari, það er ég ekki. Ég verð ekki sigurvegari fyrr en það eru minnsta kosti 5 ár liðin frá því ég greindist, maður veit aldrei með þennan sjúkdóm, því sem meiri tími líður, því líklegra verður að ég verði sigurvegari, en ég get ekki leyft mér að fagna of fljótt, ég hélt að ég væri sloppinn áður en ég greindist aftur.
Annars vill ég þakka enn og aftur fyrir bænirnar, kveðjurnar og alla velvildina sem er í fólki, ég er mjög þakklátur fyrir ykkur. Ég vona að guð vaki yfir ykkur jafn vel og hann virðist vera að vaka yfir mér
Kv Kári
»
12.12.2008 03:14:39 / agust2007
Hæhæ, ég fór sem sagt á mánudaginn í rannsóknir og kláraði þær ekki fyrr en á miðvikudaginn. Ég er bara frekar sáttur með niðurstöðurnar  Það lítur allt út eins og á síðustu rannsóknum, það virðist sem allt sé óbreytt, ekkert sést í lungunum lengur, eða þá lifrinni og bletturinn er ekki lengur í hryggnum, en þessi hola er ennþá í miltanu og hún hefur ekkert stækkað eða minnkað þannig að hún þetta er vonandi bara hola en ekkert sem þarf að hafa áhyggjur af, ég ætla þó að reyna að fá betri svör á næstu dögum en þetta ætti bara að vera hola sem hefur komið eftir geislanna út af því þeir eru svo sterkir, en það er ekki vitað. En allavega ekkert sem maður þarf að hafa miklar áhyggjur af Þessar niðurstöður þýða að ég get haldið áfram að lifa næstu 3 mánuði, haldið áfram í ræktinni, safnað hári, skemmt mér og vonandi átt gleðileg jól loksins, allavega betri jól. En já, þá er þetta eiginlega komið  Takk takk allir sem hafa verið að biðja fyrir mér, ég met það svo mikils, bara takk! En jæja, svefn! kv Kári
»
01.12.2008 02:20:26 / agust2007
hæhæ, langt síðan síðast. Þessa daganna er desember að ganga í garð, sem er einmitt tíminn sem ég þoli ekki. Ekki það að ég sé eins og Ebenezer Scrooge í sögunni eftir Charles Dickens sem hataði jólin meira en allt, en þessi tími undanfarin 2 ár hefur verið mjög erfiður, sérstaklega síðast.
Fyrir nákvæmlega ári var ég á toppi tilverunar, allt var fullkomið og ég var farinn að plana mörg ár fram í tímann hvað ég ætlaði að gera, hlakkaði til útskriftarferðarinnar, ætlaði að verða ógeðslega góður í golfi og var kominn í form aftur eftir allt sem á undan var gengið. En síðan komu fréttirnar sem ég hélt og vonaði að ég fengi aldrei aftur.
Ég fer í næstu rannsóknir 8 og 9 desember, allt er þegar að þrennt er right? Vona innilega að ég fái sömu niðurstöður og síðast, sem er á þann veg að allt líti út fyrir að vera dautt. Bið fyrir því á hverju kvöldi
Annars er ekki mikið að frétta af mér, er kominn með smá lubba aftur, nóg til að geta haft hanakamb, hálft ár og þá er ég orðinn vel fextur aftur. Síðan er ég bara í ræktinni nokkrum sinnum í viku, Svo er ég bara að njóta þess að vera orðinn nýríkur í kreppunni, fyrir ári síðan rétt áður en ég greindist aftur var ég búinn að vera tíður gestur í fatabúð þar sem ég fann geggjaðan jakka sem mér fannst vera saumaður á mig og mitt rauða hár, en ég átti aldrei efni á honum. Síðan greindist ég aftur og að sjálfsögðu gleymdi ég honum alveg þangað til ég kíkti inn í þessa búð aftur fyrir nokkrum dögum. Þar sat á slánni og beið eftir mér, ég varð bara að kaupa hann, hann beið eftir mér í heilt ár.
En já, næst á dagskrá eru bara þessar rannsóknir 8 og 9 des. Hugsa um fátt annað þessa daganna, læt ykkur vita hvernig þær fara, óskið mér góðs gengis. Kv Kári
»
07.11.2008 17:17:48 / agust2007
Jæja, long time no see. Aðallega vegna þess að lítið hefur gerst. Ferðin til Manchester var æði, unnum að sjálfsögðu og öll mörkin voru skoruð rétt hjá þar sem við sátum. Ferðin til Texas virðist ætla að dragast lengra og lengra því að spítalinn og rannsóknarstofan sem sér um þetta er svo yfirfull, þetta er víst alltaf að verða vinsælla og vinsælla þessi meðferð. Held að það sé bara ágætt fyrir mig að vita það, hlítur þetta að virka fyrir suma allavega. Á meðan verð ég bara á þessari töflumeðferð sem fer mjög vel í mig, gæti bruðið þessar töflur í mörg ár ef þyrfti/fengi. En eftir að ég fer til texas og fæ þessar frumur sem drepa vírusinn sem veldur krabbameininu þá gæti það verið að töflurnar drepi frumurnar. Verður bara að koma í ljós. Já svo fer ég í næstu rannsóknir líklega í enda þessa mánaðar, vona og bið eftir sömu góðu niðurstöðunum og ég fékk síðast. Læt ykkur vita hvernig það fer, annars er ekki mikið að frétta af mér, er að byrja að hreyfa mig meira til að vera í standi ef ég fæ slæmar fréttir og þarf aftur að fá svona sjúk og leiðinleg lyf. Spila líka póker og gengur bara vel  , Og svo bara að spila á gítarinn og hanga í leikjatölvunni minni. Hef ákveðið að ef allt fer vel og engar vondar fréttir og allt lítur vel út að fara í háskólan næsta haust, örugglega í prestinn. En má ekki fara fram úr sjálfum mér, geri það bara ef að allt lítur svakalega vel út. En allavega, bið að heilsa þangað til næst, takk fyrir bænirnar. Kv Kári
»
17.10.2008 03:10:20 / agust2007
Í gær átti ég tvítugsafmæli. Það var mjög fínt, héldum lítið fjölskylduboð sem eru alltaf skemmtileg. Hvað mig varðar þá er ég byrjaður í eftirlyfjameðferðinni sem eru bara svona töflur og ég finn ekki neitt fyrir henni. Ef að þetta er alltaf svona væri ég til í að vera á þessum töflum í mörg ár til að vera enn meira viss um að fá ekki vondar fréttir aftur, en efa að það sé í boði. Á morgunn fer ég til Manchester með systur minni á leik með Manchester United. Hefur staðið til mjög lengi hjá okkur  Völdum ekkert allt of góðan tíma en við eyðum bara ekkert miklu. Annars er ekkert nýtt að frétta, nema bara þetta afmæli og svo texas planið í janúar bara. Næst þegar að ég blogga verður örugglega rétt áður en ég fer í rannsóknirnar sem eiga að vera í nóvember, vonandi heldur þetta bara áfram að líta út fyrir að vera allt dautt! Það er næsta mál á dagskrá! Ég skil að það sé kreppa og allt það, auglýsingar líklega dýrari en þær voru en ég efa stórlega að það séu góðir viðskiptahættir að nota síður annara til að koma dótinu sínu á framfæri, mæli ekki með "fyrirtækjum" sem eru að spamma gestabókina mína  En allavega, takk fyrir kveðjurnar, bænirnar og allt. Kv Kári
»
01.10.2008 21:47:10 / agust2007
Hæhæ, bara smá update. Frekar lítið að frétta af mér, er bara að bíða eftir að byrja í eftirlyfjameðferðinni, fæ sem sagt töflur sem eiga víst ekki að gera mig veikan eða neitt sem er eitt skref í því markmiði að fá aldrei vondar fréttir af þessu krabbameini aftur Það byrjar vonandi bara á næstu dögum, fór í blóðprufu í gær sem segir til um hvernig blóðið er að jafna sig eftir alla meðferðina sem það hefur fengið. Síðan er það náttúrulega Texas í desember eða janúar, ég vona soldið að það verði í desember því mig langar ekkert svakalega að vera á landinu yfir desembertíman eftir hvernig hann hefur verið síðustu 2 ár, þá sérstaklega síðast. Mér líður bara illa þegar að ég hugsa um það. En annars er þetta bara svona smá update af mér, er bara að spila á gítar og safna hári þessa daganna. Ekkert merkilegt sem sagt  kv Kári
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|