Í gær átti ég tvítugsafmæli. Það var mjög fínt, héldum lítið fjölskylduboð sem eru alltaf skemmtileg. Hvað mig varðar þá er ég byrjaður í eftirlyfjameðferðinni sem eru bara svona töflur og ég finn ekki neitt fyrir henni. Ef að þetta er alltaf svona væri ég til í að vera á þessum töflum í mörg ár til að vera enn meira viss um að fá ekki vondar fréttir aftur, en efa að það sé í boði.
Á morgunn fer ég til Manchester með systur minni á leik með Manchester United. Hefur staðið til mjög lengi hjá okkur

Völdum ekkert allt of góðan tíma en við eyðum bara ekkert miklu.
Annars er ekkert nýtt að frétta, nema bara þetta afmæli og svo texas planið í janúar bara.
Næst þegar að ég blogga verður örugglega rétt áður en ég fer í rannsóknirnar sem eiga að vera í nóvember, vonandi heldur þetta bara áfram að líta út fyrir að vera allt dautt! Það er næsta mál á dagskrá!
Ég skil að það sé kreppa og allt það, auglýsingar líklega dýrari en þær voru en ég efa stórlega að það séu góðir viðskiptahættir að nota síður annara til að koma dótinu sínu á framfæri, mæli ekki með "fyrirtækjum" sem eru að spamma gestabókina mína

En allavega, takk fyrir kveðjurnar, bænirnar og allt. Kv Kári