If youre going through hell, keep going
Myndasíðan mín
19.10.2009 19:40:26 / agust2007

Mættur á ný

Jæja, ég er mættur á ný, 10 vikum eða svo síðan að ég bloggaði síðast og ennþá eru einhverjir sem kíkja. Ég varð 21 árs í síðustu viku, sem er ekkert merkilegt nema fyrir þær sakir að ég bjóst aldrei við því að verða 21 árs. Ég hélt upp á afmælið mitt á spítalanum, í 3 mánaða rannsóknum og fékk góðar niðurstöður úr þeim. Læknarnir sjá ekkert sem þeir halda að sé krabbamein, það eina sem þeir sjá eru blettir sem hafa verið óhreyfðir lengi og þeir halda að séu bara ör eftir geislana. Bráðum eru 2 ár síðan að ég greindist í annað skiptið,,,ég rifja á hverjum degi upp hvað ég var hægt kominn, hvað mér leið eins og ég væri kominn á endastöð á þessum tíma, ég þakka fyrir á hverjum degi að vera í þessari góðri stöðu sem ég er í, í dag. Þetta er samt enganvegin búið, mitt mein var eins og þið vitið búið að dreyfa sér út um allt, og það er ekkert gefið í þessum efnum, en það lítur allt vel út núna :)

Þessa daganna er ég á fullu í sálfræðináminu, mér hefur gengið vel hingað til og námið á vel við mig, ég vill geta látið gott af mér leiða og deilt reynslunni minni með öðrum til þess að hjálpa, og sálfræðin er mjög góður vetvangur fyrir það. Síðan er háskólalífið mjög áhugavert, mikið djamm og gleði :d

En já, rannsóknir búnar og ég get verið glaður og hress í 3 mánuði í viðbót, alveg þangað til næstu rannsóknir eru, en með hverjum deginum sem líður styrkist ég í þeirri trú að þetta endi vel. En vegna fyrri reynslu heldur maður sér á jörðinni í þeim efnum :)

takk fyrir að kíkja við ennþá, hérna er svo mynd af stráknum með hárið á milli tíma í háskólanum

http://photos-d.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs234.snc1/8118_151481084554_781634554_2488935_3639789_n.jpg http://photos-h.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs162.snc1/6052_109639864554_781634554_2069794_7863265_n.jpg


Kv Kári :)
Þuríður Þorbjörg Káradóttir skrifaði
Gott mál og gaman að það skuli ganga vel, já vertu áfram með báðar fætur á jörðinni. Guðs blessun til þín. Kkv.ÞÞK
Ella (ókunnug) skrifaði
FLOTTUR !!! Gott að heyra þessar fréttir, held alltaf áfram að kíkja á þessa síðu þín og vona í hvert skipti eftir góðum fréttum. Þessar fréttir eru frábærar og haltu áfram að njóta Háskóla lífsins frábæri strákur :) kv. Ella
ókunn að vestan skrifaði
Hæ Kári Örn (flott nöfn)
Til hamingju með nýbirjaða árið vel byrjaði það ekki rétt.
Þú ert altaf jafn frábær og átt varla skilið annað en að þér gangi allt í haginn, þess óska ég þér.
Í Guðs friði.
'Asta Einarsdóttir skrifaði
Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þér og gaman að sjá myndirnar. Innilegar hamingjuóskir með afmælið, gangi þér áfram sem allra best. Kærar kveðjur til þín og fjölskyldunnar. Ásta.
Hanna skrifaði
fylgist alltaf með frændanum,- og það er gaman núna!
Bára Jóns skrifaði
Til hamingju með afmælið Kári minn, kíki alltaf reglulega hér inn.. flottur með lubbann :-) Bestu kveðjur
FrúDís skrifaði
Frábært að heyra fréttir af þér. :) Þú stendur þig eins og hetja og námið á örugglega eftir að nýtast þér vel í framtíðinni. Reynslan þín og skólinn gera þig örugglega að frábærum sálfræðingi. Flottt hár ;) ;)
Addi skrifaði
Mikið var að maður frétti af þér, hef mikið hugsað til þín, njóttu þín fram að næstu rannsókn. Til hamingju með afmælið.
Sólveig skrifaði
Enn hvað það er gott að þú ert í þessum góðu málum.
En auðvitað skiljanlegt áð þú sért aldrei alveg áhyggjulaus um framtíðina. En þá er að tileinka sér sálfræði lærdóminn sem hjálpar eflaust. Annars hefur mér fundist þú svo sérstaklega þroskaður og gáfulegur strákur að ég efast ekki um að þú finnur bestu leiðina til að lifa vel og ríkulega.
Allavega óska ég þér af heilum hug velfarnaðar til langrar framtíðar og sendi þér allegt ljós.
frá Sólveigu
Lilja ókunnug skrifaði
Segi sama og aðrir, mikið var, maður var orðinn áhyggjufullur, lukku með 21 árið og nú horfum við bara björtum augu á rétta braut inn í framtíðina, gangi þér vel í sálfræðinni :)
Hulda G. Geirsd. skrifaði
Mikið er nú gaman að heyra frá þér aftur og til hamingju með afmælið! Njóttu lífsins og háskólans bara í botn - þú átt allt það besta skilið. Gangi þér alltaf sem best!
Kv.
HGG
Óla Maja skrifaði
Yndislegt að fá svona góðar fréttir af þér :) Hugsa alltaf til þín og kíki af og til við hérna til að tékka á þér. Njóttu lífsins handsome :D
Gudrun Magnúsdóttir skrifaði
Kári minn
mikið er gaman að lesa þessar góðu fréttir. Ég er ein af þeim sem kíkja reglulega inn á síðuna þína og verð óróleg ef ég hef ekki heyrt í þér lengi.
Mínar allra bestu kveðjur
Guðrún.
Bára. skrifaði
Kári þú ert alveg æðislegur strákur,ég fylgist líka reglulega með þér hérna, frábærar fréttir, gangi þér vel.
Kristín skrifaði
Gott að heyra fréttir, búin að kíkja af og til á síðuna þína. Til hamingju með afmælið og gangi þér vel Kári minn.
sigga ókunnug skrifaði
Þú ert líklega einn af þeim sem áttir að læra áður en þú byrjaðir að predika :-)
Margir tala án þess að hafa hugmynd um hvað þeir eru að tala um :-0
Hef trú á að sálfræðin leiði þig út í það að hjálpa sjúkum. Kem til þín ef ég lendi í vandræðum.
Lilja ókunnug skrifaði
Gaman að heyra frá þér. Alltaf jafn yndislegur og verður frábær sáli. gangi þér vel.
halla skrifaði
Yndislegt að heyra að allt gengur vel hjá þér. Hugsa oft til þín. Kveðja að vestan. Halla.
Heiða skrifaði
Gaman að heyra Kári minn að allt gangi vel, svona á lífið að vera :-)

Þú ert flottur strákur hvort sem þú ert með hár eða ekki :-)
Ókunnug kona skrifaði
Frábært að allt skuli ganga svona vel.
Bestu kveðjur og gangi þér allt í haginn :)
Berglind ókunn skrifaði
Þetta er bara geggjað. Gott að heyra líka um kraftaverkin. Ég veit hvort sem að sálfræðin verður greinin þín eða eitthvað annað þá munnt þú komast þangað sem þig langar. Megi allar góðar vættir fylgja þér áfram. Þú er bara sætastur Rauðhaus :) Knús í hús
Steinunn skrifaði
Elsku Kári, gott að frétta af þér og vita að allt gengur vel :-)

Gaman að sjá þig, frískan og kátan.

Gleðileg jól frá okkur kellunum þínum á bókasafni Verzlunarskóla Íslands.


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

RSS tengill