If youre going through hell, keep going
Myndasíðan mín
02.02.2009 06:42:50 / agust2007

nýjar fréttir

Jæja, ég var ekki búinn að gleyma að ég væri með bloggsíðu, en það hefur ekki mikið verið fyrir mig að skrifa um. Hins vegar fékk ég nýjar fréttir frá Texasferðinni í síðustu viku. Hún ætlar að dragast og dragast og mamma ákvað að senda aðallækninum á spítalanum þarna bréf og fékk strax svar, það hafði sem sagt gengið vel að rækta blóðið mitt og það verður ekki tilbúið fyrr en í apríl, læknirinn sagði að ég ætti að koma í lok apríl eða byrjun maí og þyrfti að vera í tvær vikur.

Þetta er allt annað en það sem ég hélt að væri að fara að gerast, ég hélt ég væri bara að fara núna í enda febrúar 4-6 vikna törn, en þetta verður sem sagt í vor í kring um mánaðarmótin apríl-maí og á eftir að taka 2 vikur. Á meðann held ég bara áfram að taka krabbameinstöflurnar sem ég er að taka. Sérstakelga núna því vonandi get ég platað læknanna til að gefa mér stærri skammta af þeim:P, þær fara vel í mig og um að gera að fá sem mest og maður getur.

Hins vegar er voða lítið að frétta annað, ætla mér að fara til davíðs vinar míns sem er á spáni um þessar mundir, spila með honum golf í 10 daga eða svo og halda áfram að koma mér í form, er búinn að vera svakalega duglegur í ræktinni undanfarið og er smátt og smátt að fá gamla vöxtinn minn aftur:)

Síðan eftir því sem lengri tími líður án þess að maður fái slæmar fréttir og manni lýður vel því mun meiri hamingju maður tekur inn. Þetta er eins og snjóbolti sem rúllar, og mér líður bara ágætlega þessa daganna. Þakka guði allavega fyrir vonina og bjartsýnina sem ég vakna með á hverjum morgni þessa daganna, þetta má aldrei koma aftur!

En já, ég sef út, spila á gítarinn minn, fer í ræktina, heng í tölvunni, les bækur og djamma þessa daganna. Jæja, smá update komið af mér, hafið þið það sem allra best og takk allir sem biðja fyrir mér:), kv Kári
Sólveig Jónsdóttir skrifaði
Sæll, Kári minn. Gott að frétta af þér, og að fréttirnar eru góðar.;) Það er bara allt gott að frétta af mér. Skilaðu kveðju til mömmu þinnar.
Halla (ókunnug) skrifaði
Gott að heyra að allt gengur vel, gangi þér vel áfram.
Björk töffari skrifaði
Yndislegt að allt gengur vel hjá þér Kári minn og ég bið guð um að svo verði áfram..haltu áfram á þessari braut...gangi þér vel
þóra páls skrifaði
Gott að lesa um að vonin og bjartsýnin sé mætt til leiks á ný til þín. Sú blanda verður að vera með í för á svona ferðalagi. Vonandi tekurðu holu í höggi í golfferðinni og að allt gangi þér í haginn.
Ásta Einarsdóttir skrifaði
Mikið er gott að fá góðar fréttir af þér.Góða ferð til Spánar. Held áfram að senda þér góðar hugsanir.
Ella (ókunnug) skrifaði
Hæ Kári, maður var nú alveg farin að sakna þess að heyra ekkert frá þér :) Gangi þér áfram svona vel og hafðu það gott á spáni hjá vini þínum og njóttu þess að vera til :) Kv. Ella
Kristín skrifaði
Hæ, hæ. Gott að heyra frá þér. Gangi þér vel og góða ferð til Spánar. Guð veri með þér og þínum.
Þuríður Þorbjörg Káradóttir skrifaði
Guðsblessun. Kv.ÞÞK
ókunn að vestan skrifaði
Alltaf gaman að fá góðar fréttir.
Get aldrei komið því nógsamlega frá mér hve frábær ungur maður þú ert, svo jákvæður og réttsýnn.
Gangi þér allt í haginn.
Vilborg (sem þekkir mömmu þína) skrifaði
Ljúft að heyra, góða skemmtun á Spáníá!
FrúDís skrifaði
Þetta er gott að lesa. Lífið að færast í góðar skorður. Svo bara að hnykla vöðvana og njóta lífsins í botn. Og góða ferð...
Á spáni er gott að djamma og djúsa...........í sandölum og ermalausum boooll.....

Dagný skrifaði
Glæsilegt Kári!! Gott fyrir ykkur að fá svona góðar fréttir. Spennandi að lengja sumarið þarna úti. Kveðja úr hinum endanum. Dagný.
Haukur skrifaði
Gaman að heyra frá þér og að allt sé í góðu og þér líði vel. Þú ert eins og áður hetja í mínum augum.
Bið að heilsa þér og fjölskyldunni og skilaðu líka kveðju til Davíðs og Heiðu frá mér.
Kveðja frá Florida

Haukur
ein ókunnug skrifaði
Hæ Kári gott að heyra að allt gangi vel.

Halla skrifaði
Gott að heyra frá þér Kári minn og ég tala ekki um að heyra hve vel þér gengur að höndla aðstæður. Ég segi bara góða ferð og skemmtun á Spáni og sendi þér mínar bestu óskir um gott gengi og góðan árangur í Texasferðinni.
Þorgerður (ókunnug) skrifaði
Mikið er gott að heyra að allt gengur vel. Njóttu þess í botn, sem mér heyrist þú reyndar vera að gera :)
Enn ein ókunnug í viðbót ;) skrifaði
Ég vildi bara óska þér innilega til hamingju með lífið.
Þú ert reynslunni ríkari en margir aðrir, þó þeir beri sumir þrefaldan og fjórfaldan þinn aldur.
Þó svo að reynslan hafi ef til vill ekki komið í skemmtilegustu umbúðunum er ég viss um að þú, með þitt frábæra hugarfar, munt geta nýtt þér hana vel í lífinu.
Og það er að vissu leyti mikill sigur að búa yfir þeirri lífsreynslu sem þú hefur neyðst til að öðlast án þess að fá neinu um það ráðið og geta nýtt sér hana til góðs á ótrúlegustu stöðum í lífinu.

Ég óska þér allrar heimsins hamingju og gæfu í lífinu og megirðu vinna ótal marga sigra til viðbótar við alla þá sem þegar eru komnir :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

RSS tengill