Hæhæ, langt síðan að ég hef látið vita af mér, hérna er ég hins vegar og ætla að henda smá bloggi inn. Ég er bara hress, hefur margt gerst eins og gefur að skilja undanfarið. Ég fór meðal annars í viðtal fyrir kraft sem er blað sem kraftur, stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein gefur út. Það var mjög skemmtileg stelpa sem fékk mig í viðtalið og það var bara fín reynsla, þetta er mjög vandað blað og kemur út í nóvember að ég held. Fór í myndatöku og allt, leið eins og einhverju módeli a laugarveginum þar sem var verið að taka myndir af mér. Það var fínt að deila reynslunni minni þó að ég held að ég hafi komið henni ansi vel til skila á þessari síðu þá eru ekki allir sem lesa hana.
Daglegt líf "án" krabbameins er merkilegt, nú þegar að ár er liðið frá því að ég greindist, reyndar eitt ár og næstum 2 mánuðir en maður hefur byrjað að hugsa mikið um hvað ég hef gengið í gegn um á þessu ári og hvað hefur skeð. Mér líður eins og að ég sé búinn að vera á hraðlest alveg frá því að ég greindist, greiningin, hræðslan, aðgerðin, sjúkrahúsið, meðferðin, lyfin, ógleðin, þunglindið, niðurbrotið sjálfsálit, geislarnir, skönnin, gleðinn yfir að hausverkurinn hefði horfið, lífsgleðin sem maður fær þegar að maður finnur að maður er á batavegi, að aðlagast venjujlegu lífi aftur.....ég gæti haldið áfram í allt kvöld.
Þetta er reynsla sem að eftir að móta mig alveg þangað til ég dey, hvenær sem það verður. Ég finn ennþá fyrir þunglindi því maður er bara svo tómur eitthvað eftir allar þessar stóru spurningar sem maður hefur þurft að spyrja sig undanfarið ár. Þegar að ég fæ hausverk til dæmis hætti ég að starfa eðlilega því ég verð svo hræddur um að það sé eitthvað að ske í krabbameininu. Til þess að ég sé ekki alltaf að spyrja mig að þessum spurningum reyni ég að halda mér sem mest uppteknum, elska að vera í skólanum, er byrjaður aðeins aftur í fótboltanum, reyni að vera eins mikið með vinum mínum og ég get og svo framvegis. Reyni alltaf að hafa eitthvað til að hlakka til
Í einni viðleytni minni við að halda mér uppteknum hef ég spilað mikið á gítarinn minn, og sungið aðeins eftir að röddin kom til baka.
Ég skráði mig í prufur fyrir vælið, sem er söngvakeppni Versló og er haldin í borgarleikhúsinu. Plataði vin minn Jón Ásgeir til þess að spila með mér og við tökum samann lagið Run með Snow Patrol á gítarana okkar, við æfðum þetta eina kvöldstund og fórum í prufur og brilleruðum þar. Komumst í gegn og ég er að fara að spila fyrir framann fullt borgarleikhús um miðjan nóvember.
Hárið á mér er allt komið aftur, ég er meira að segja búinn að fara í klippingu, stákurinn hefur aldrei litið betur út
síðan er ég búinn að þyngjast upp í 69 kíló ekki slæm tala það
, ég er mjög sáttur með það, allavega meðan að það er kjöt en ekki fita. Annað sem er að frétta er að ég er að fara til jamaica á þriðjudaginn með fjölskyldunni minni, ætlum að fara í 8 daga og gista þar á lúxushóteli
hlakkar til að sjá karabíahafið!
Kv Kári