Jæja, allt of langt síðan að ég setti inn blogg en betra seint en aldrei

Allavega hefur það verið þannig hjá mér að engar fréttir eru góðar fréttir, fór í rannsóknir í síðustu viku sem komu ansi vel út. Þá eru 3 mánuðir í næstu rannsóknir og ég get lifað og fíflast þangað til, maður lifir í 3 mánaða tímabilum.
En það þýðir ekkert að ég sé ekki hamingjusamur, ég stend upp úr rúminu á hverjum einasta morgni og þakka fyrir vonina sem ég hef, um að verða fullorðinn, mennta mig og eignast fjölskyldu. Síðan er það texas í byrjun maí.
Langar líka aðeins að biðjast afsökunar því ég á náttúrulega að vera löngu búinn að uppfæra bloggið, það er fólk sem skoðar það sem hefur mig í bænum sínum og ég er ekki að sinna þeim á þann eina hátt sem ég get, og það er uppfæra bloggið mitt.
Þessa daganna er ég upptekinn við að taka mótorhjólaprófið þar sem ég er nýbúinn að kaupa mér mótorhjól fyrir sumarið, svo er það bara ræktin, vangaveltur um hvaða nám ég ætla í næsta haust ef allt gengur eftir hjá mér. Er líka að plana evrópureisu með 2 öðrum vinum mínum í sumar, ætlum að leigja bíl og keyra um þýskaland, austurrísku alpana og norðurhéruð ítalíu, upp til frakklands og enda í amsterdam. Við færum þá fljótlega eftir næstu rannsóknir eftir rúma 3 mánuði, að sjálfsögðu bara ef rannsóknirnar fara vel

En já, ég ætla að skella einni mynd með svo þið takið mig í sátt aftur eftir bloggleysið.
kv kári